29 mar. 2004Um helgina urðu Njarðvíkurstúlkur Íslandsmeistarar í minnibolta kvenna. Stúlkurnar léku til úrslita við Hamar og höfðu sigur, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001976/19760502.htm[v-]26-20[slod-]. Haukar urðu í þriðja sæti í mótinu, sem fram fór í Hveragerði. Njarðvíkurliðið vann einnig sigur á Haukum, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001976/19760102.htm[v-]26-21[slod-], Hrunamönnum, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001976/19760301.htm[v-]36-19[slod-] og Grindavík [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001976/19760402.htm[v-]45-14[slod-]. Þá varð KR Íslandsmeistari í 8. flokki karla. Mynd af liðinu verður vonandi komin á vefinn innan skamms. Tölfræði Njarðvíkurliðsins í úrslitaumferðinni má finna [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001976/UMFN____.htm[v-]hér[slod-] en þar má sjá, leikjafjölda, stig og vítanýtingu stelpnanna. Íslandsmeistarar Njarðvíkur í minnibolta kvenna 2004: Efri röð frá vinstri: Einar Árni Jóhannsson þjálfari, Alma Dögg Helgadóttir, Heiða Björg Valdimarsdóttir, Lena Margrét Hinriksdóttir, Dalrós Þórisdóttir, Sunna Rós Helgadóttir, Hanna Birna Valdimarsdóttir, Árnína Lena Rúnarsdóttir, Aníta Marcer Pálsdóttir, Bylgja Sverrisdóttir þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Sara Lind Teitsdóttir (systir Ernu Lindar), Elísabet Bragadóttir, Ína María Einarsdóttir, Erna Lind Teitsdóttir, Saga Roman, Dagmar Traustadóttir fyrirliði, Birgitta Björnsdóttir, Jóhanna Áslaugsdóttir og Þóra Kristín Ottósdóttir.