2 apr. 200467. Íþróttaþing Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands verður haldið í Reykjavík, nánar tiltekið á Grand hótel, laugardaginn 24. apríl. Fyrirkomulag og áætluð dagskrá 67. Íþróttaþings ÍSÍ 08.30 Afhending þingskjala Lögð er áhersla á að þingfulltrúar séu komnir í sæti sín kl. 09.25 vegna komu Forseta Íslands, Hr. Ólafs Ragnars Grímssonar 09.30 Setning 67. Íþróttaþings ÍSÍ 10.15 Dagskrá heldur áfram · Kjörnir 1. og 2. þingforseti · Kjörnir 1. og 2. þingritari · Kosning ungra íþróttamanna skv. gr. 12.3 · Kosning 5 manna kjörbréfanefndar · Lögð fram skýrsla framkvæmdastjórnar · Lagðir fram endurskoðaðir reikningar · Umræður og samþykkt reikninga · Kosning þingnefnda: - Kjörnefnd 5 manna - Fjárhagsnefnd 5 manna - Allsherjarnefnd 5 manna - Laganefnd 5 manna - Aðrar nefndir skv. ákvörðun þings hverju sinni · Stofnun nýrra sérsambanda · Lagabreytingatillögur · Dóms- og refsiákvæði og Móta- og keppendareglur ÍSÍ · Aðrar tillögur sem kynntar voru í fundarboði · Teknar fyrir tillögur og önnur mál sem lögð hafa verið fyrir þingið og þingmeirihluti leyfir 12.00 Hádegisverður í boði Reykjavíkurborgar - Hvammur og Setrið 13.00 Þingnefndir starfa: Fjárhagsnefnd - Háteigur, 4. hæð Allsherjarnefnd - Gallery, kjallari Laganefnd - Dalur, kjallari kl.13.15-14.30 Lífsstíll 9 og 15 ára Íslendinga - niðurstöður rannsóknar dr. Erlings Jóhannssonar og fl. kynntar í aðalsal Grand Hótel 15.30 Kjörnefnd kynnir framboð. · Kosningar: a) Framkvæmdastjórn og varastjórn, sbr. 17. gr. b) 2 skoðunarmenn og 2 til vara c) Sex dómarar í dómstól ÍSÍ og sex dómarar í áfrýjunardómstól ÍSÍ · Þingnefndir gera grein fyrir störfum sínum-afgreiðsla tillagna · Tillögur fjárhagsnefndar d) Síðasti liður kosninga; Kjörnefnd sem starfi fram yfir næsta þing – ef lagabreytingatillaga verður samþykkt · Þingslit. Eftir þingslit býður ÍSÍ í móttöku á Grand Hótel