5 apr. 2004Í kvöld fer fram þriðji úrslitaleikur Snæfells og Keflavíkur um Íslandsmeistaratitilinn í karlaflokki. Staðan í einvígi liðanna er jöfn 1-1 eftir tvo fyrstu leikina. Leikurinn, sem sýndur verður á Sýn, hefst kl. 19:15. Heitt var í kolunum í síðasta leik liðanna í Keflavík á laugardag. Corey Dickerson leikmanni Snæfells var vísað af leikvelli og hefur í kjölfarið verið kærður til aganefndar. Þá hefur Snæfell sent inn kæra á hendur Arnari Frey Jónssyni leikmanni Keflavíkur, vegna atvika sem gerðust í leiknum. Aganefnd tekur kærurnar fyrir á morgun og verða bæði lið því væntanlega fullskipuð í kvöld.