6 apr. 2004Keflavík vann sem kunnugt er sinn 11. Íslandsmeistaratitil í 1. deild kvenna á dögunum. Þann 1. apríl sl. settum við skemmtilega mynd af liðinu í óvenjulegum búningum hér á vefinn í tilefni dagsins. En hér kemur loks Íslandsmeistaramyndin. Efri röð frá vinstri: Erla Þorsteinsdóttir fyrirliði, Birna Valgarðsdóttir, Erla Reynisdóttir, Anna María Sveinsdóttir og María Ben Erlingsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Marín Rós Karlsdóttir, Rannveig Randversdóttir, Svava Ósk Stefánsdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir og Halldóra Andrésdóttir. Á myndin vantar þjálfara liðsins, Sigurð Ingimundarson.