7 maí 2004Sænska Íþróttasambandið, RK, hefur kynnt niðurstöður könnunar á kostnaði barna og unglinga við ástundun íþrótta. Kostnaðurinn var kannaður í tíu vinsælustu íþróttunum í Svíþjóð sem voru: Körfubolti, knattspyrna, frjálsar íþróttir, golf, fimleikar, innibaný, íshokký, hestamennska, sund og tennis. Í ljós kom að dýrast var að stunda íshokký eða um 91.000 kr. á ári. Ódýrast var hins vegar að stunda fimleika eða 18.500 kr á ári. Körfuboltinn var rétt í meðaltali greinanna tíu með 37.000 kr. kostnað á ári. Í könnuninn kom fram að 53% þeirra barna og unglinga sem stunda íþróttir eru stúlkur. Þá kom í ljós að stúlkur eru duglegri en piltar að taka þátt í störfum körfuknattleiksdeilda, en þær voru 53% þeirra sem það gerðu. Þá kom einnig í ljós að körfubolti er vinsælasta íþróttin meðal Svía sem eiga rætur sínar að rekja til annars lands. Alls voru 28% körfuknattleiksiðkenda meðal barna og unglinga, af erlendu bergi brotin, sem var það mesta í nokkurri íþróttagrein.