22 maí 2004Drengjalandsliðið tapaði fyrir Norðmönnum með 10 stigum í morgun eftir jafnan og spennandi leik, 73-83. Liðið leikur til úrslita í mótinu á morgun, en ekki er enn ljóst hverjir mótherjarnir verða. Leikurinn var heldur kaflaskiptur, þar sem liðin skiptust á að leiða, en þó leit út fyrir að íslensku strákarnir ætluðu að vinna leikinn framan af og leiddu þeir í hálfleik, 43-40. Þegar leið á sóttu Norðmennirnir fastar að íslensku strákunum og höfðu sigur, 83-73. Stigahæstur í íslenska liðinu var Hjörtur Hrafn Einarsson með 16 stig (11 fráköst). Brynjar Björnsson og Hörður Axel Vilhjálmsson (8 tapaðir, 7 stoðsendingar) skoruðu 11 stig. Benedikt Guðmundsson thjálfari liðsins notaði taekifaerið í leiknum og gaf varamönnunum taekifaeri.