8 jún. 2004Stjórn Alþjóða körfuknattleikssambandsins, FIBA, hefur kynnt nýja tegund körfuspjalda sem notuð verða á Ólympíuleikunum í Aþenu. Spjöldin koma aðdáendum NBA reyndar kunnuglega fyrir sjónir, en nýbreytnin felur í sér ljósaferning sem ljómar eins og jólatré þegar leiktími leikhlutanna fjögurra rennur út. Þessi búnaður hefur komið að góðum notum í NBA-deildinni og á eflaust að sanna ágæti sitt í Aþenu sömuleiðis. Á heimsmeistaramótinu í Indianapolis árið 2002 var kynnt til sögunnar nýtt kerfi, PTS eða Precision Timing System, sem sömuleiðis verður notað í Aþenu. Þetta kerfi beintengir flautur dómaranna við leikklukkuna, þannig að um leið og einhver dómaranna blæs í flautuna sína stöðvast leikklukkan. Þetta gefur að sjálfsögðu af sér mun nákvæmari tímatöku leiksins, í stað þess að stöðvun klukkunar sé bundin viðbragðsflýti þeirra sem stýra henni gerist þetta sjálfkrafa um leið og blásið er í flautu. Þessi búnaður, þ.e.a.s. ljósakransinn á körfuspjaldinu og PTS, verður notaður í öllum stærri keppnum á vegum FIBA frá og með ÓL í Aþenu.