9 jún. 2004Æfingabúðir Baden og KKÍ fóru fram í DHL-höllinni við Frostaskjól í síðustu viku og tókust mjög vel. Um 60 leikmenn á aldrinum 12 - 18 ára mættu til leiks, fengu kennslu, leiðbeiningar og hlýddu á fyrirlestra. Búðirnar voru byggðar á stöðvaæfingum þar sem leikmönnum var raðað niður á 6 stöðvar, vörn, skot, póst-hreyfingar, bakvarðahreyfingar, boltaæfingar og snerpu /þolæfingar. Þessar æfingabúðir Baden og KKÍ eru ekki þær einu sem ungu og efnilegu körfuknattleiksfólki standa til boða í sumar. Núna um helgina hefjast Elítu-æfingabúðirnar undir styrkri stjórn Benedikt Guðmundssonar, unglingalandsliðsþjálfara, í Austurbergi og í næstu viku hefst svo körfuboltanámskeið Fannars Ólafssonar og Loga Gunnarssonar í Reykjanesbæ. Nánari upplýsingar um það námskeið má finna hér neðar á síðunni.