16 jún. 2004Íslenska landsliðið í körfuknattleik mætir Belgum í þremur landsleikjum hér á landi í næstu viku. Leikjadagskráin lítur svona út: Fim. 24.júní kl. 19.00 Íþróttahúsið í Borgarnesi Fös. 25.júní kl. 19.00 Íþróttahúsið í Keflavík Lau. 26.júní kl. 14.00 Íþróttahúsið í Stykkishólmi Leikirnir gegn Belgum eru liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir Evrópukeppni landsliða í haust, en auk Belganna koma Pólverjar í heimsókn síðar í sumar. Evrópuleikirnir fara fram í september, útileikur gegn Dönum og heimaleikir gegn Azerbadjan og Rúmeníu. 18 manna hópur hefur æft undir stjórn Sigurðar Ingimundarsonar síðustu vikur. Hópinn skipa eftirtaldir leikmenn: - Hlynur Bæringsson - Snæfell - Sigurður Þorvaldsson - Snæfell - Fannar Ólafsson - Keflavík - Magnús Gunnarsson - Keflavík - Jón N. Hafsteinsson - Keflavík - Arnar Freyr Jónsson - Keflavík - Halldór Halldórsson - Keflavík - Friðrik Stefánsson - Njarðvík - Páll Kristinsson - Njarðvík - Páll Axel Vilbergsson - Grindavík - Sævar Haraldsson - Haukar - Eiríkur Önundarson - ÍR - Ómar Örn Sævarsson - ÍR - Lárus Jónsson - Hamar - Pálmi Sigurgeirsson - Breiðablik - Morten Þór Szmiedowicz - Grindavík - Jakob Sigurðsson - Birmingham Southern - Helgi Magnússon - Catawba College Tvær æfingar landsliðsins á næstu dögum eru opnar fjölmiðlum. Þær eru: Fös. 18.júní kl. 18.00 Smárinn, Kópavogi Þri. 22.júní kl. 18.00 Smárinn, Kópavogi Þess má geta að kvennalandslið Íslands og tvö yngri landsliðanna að auki standa í stórræðum á komandi vikum. Kvennalandsliðið heldur til Andorra í lok júlí og tekur þar þátt í Promotion Cup, U-16 ára lið kvenna fer til Eistlands um mánaðamótin júlí-ágúst og tekur þátt í Evrópukeppni stúlkna og U-16 ára lið karla fer til Englands í byrjun ágúst til leiks á Evrópumóti drengja.