21 jún. 2004Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik undirbýr sig nú af kappi fyrir þrjá leiki við Belga sem fram fara hér á landi á fimmtudag, föstudag og laugardag. Leikirnir eru þessir: - Fim. 24.júní kl. 21.00 - Borgarnes - Fös. 25.júní kl. 21.00 - Keflavík - Lau. 26.júní kl. 14.00 - Stykkishólmur 18 manna landsliðshópur hefur æft undir stjórn Sigurðar Ingimundarsonar undanfarnar vikur. Sigurður mun tilkynna fyrsta 12 manna hópinn síðar í dag eða á morgun, en væntanlega munu allir 18 leikmennirnir koma við sögu í þessum leikjum. Hópurinn lítur þannig út: - Hlynur Bæringsson - Snæfell - Sigurður Þorvaldsson - Snæfell - Fannar Ólafsson - Keflavík - Magnús Gunnarsson - Keflavík - Jón N. Hafsteinsson - Keflavík - Arnar Freyr Jónsson - Keflavík - Halldór Halldórsson - Keflavík - Friðrik Stefánsson - Njarðvík - Páll Kristinsson - Njarðvík - Páll Axel Vilbergsson - Grindavík - Sævar Haraldsson - Haukar - Eiríkur Önundarson - ÍR - Ómar Örn Sævarsson - ÍR - Lárus Jónsson - Hamar - Pálmi Sigurgeirsson - Breiðablik - Morten Þór Szmiedowicz - Grindavík - Jakob Sigurðsson - Birmingham Southern - Helgi Magnússon - Catawba College Belgíski hópurinn sem kemur til landsins lítur svona út: Jean-Marc Jaumin 34 ára – bakvörður – 1.84 m. Guy Muya 21 árs – bakvörður – 1.90 m. Gerrit Major 24 ára – bakvörður – 1.88 m. Duke Tshomba 26 ára – framherji – 1.95 m. Hugo Sterk 22 ára – bakvörður – 1.93 m. Patrick Mutombo 24 ára – bakv./framh. – 1.97 m. Wim Van De Keere 26 ára – framherji – 2.04 m. Butch Tshomba 29 ára – framherji – 1.98 m. Jeffrey Van Der Jonckeyd 22 ára – framherji – 2.02 m. Piet De Bel 24 ára – miðherji – 2.11 m. Dimitri Lauwers 25 ára – bakvörður – 1.85 m. Axel Marie Gustav Hervelle 21 árs – framherji – 2.04 m. Sébastien Buja 27 ára – miðherji – 2.13 m. Þjálfari: Giovanni Bozzi Eftir því sem næst verður komist er talsverð endurnýjun á landsliðshópi Belga, en tveir reynsluboltar eru í hópnum. Leikstjórnandinn Jean-Marc Jaumin hefur verið í hópi sterkustu leikmanna Belga um árabil og skotbakvörðurinn Dimitri Lauwers sömuleiðis, en hann leikur með franska liðinu Dijon sem spilaði við Keflavík í Evrópukeppninni á síðustu leiktíð.