24 jún. 2004Fyrsti landsleikur Íslands og Belgíu af þremur verður í Borgarnesi í kvöld kl. 21:00. Belgíska liðið kom til landsins í gær og dvelur í Keflavík á meðan á heimsókninni stendur. Liðið æfði í íþróttahúsinu í Keflavík í gærkvöld og í morgun. Íslenska liðið sem leikur í kvöld hefur verið valið ein og áður hefur komið fram hér á vefnum. Tveir nýliðar eru í liðinu í kvöld en það eru Arnar Freyr Jónsson úr Keflavík og Lárus Jónsson úr Hamri. Bæði liðin undirbúa sig fyrir leiki í Evrópukeppni landsliði í haust. Belgarnir í A-hlutanum og okkar menn í B-hlutanum. Leikirnir þrír nú eru fyrsti áfangi liðanna að undirbúningi fyrir það verkefni. Þessar þjóðir hafa sjö sinnum áður mæst í landsleik. Belgar hafa sigrað í sex viðureignum en Íslendingar í einni. Sigur vannst á Belgum í æfingaleik í Gent 1987, 72-68. Þjóðirnar mættust síðast í riðlakeppni EM 1999-2000. Þá sigruðu Belgar 25 stiga mun í Reykjavík og 35 stiga mun í Belgíu. Leikurinn í kvöld verður vígsluleikur nýja gólfsins í íþróttahúsinu í Borgarnesi, en lagt hefur verið glæsilegt parketgólf á salinn. Leikurinn hefst eins og fyrr segir kl. 21:00.