28 jún. 2004Ísland og Belgía mættust öðru sinni í Keflavík á föstudagskvöld. Ísland hafði yfir lengst af í leiknum en Belgar sigu fram úr á lokamínútunum og tryggðu sér sigur, 74-78. Þriðji leikur liðanna fór fram í Stykkishólmi á laugardag. Þar hafði Ísland sigur, 77-76. Leikurinn í Keflavík var vel leikinn að beggja hálfu og sigurinn hefði með smá heppni getað fallið íslenska liðinu í skaut. Hittni okkar manna var mun betri en í fyrsta leiknum og vörnin var einnig betri. Helgi Már Magnússon var stigahæstur í íslenska liðinu með 16 stig og 7 fráköst. [v+]http://www.kki.is/leikvarp/?Dags=25.6.2004[v-]Tölfræði leiksins[slod-]. Þriðji leikuinn í Stykkishólmi á laugardag var hann bestur leikjanna þriggja hvað varðar leik íslenska liðsins. Leikurinn var hraðari en hinir fyrri og íslenska liðið sýndi styrk sinn í 3ja stiga skotunum. Lokamínúta leiksins var æsispennandi. Belgar áttu tvö vítaskot þegar 4 sekúndur voru eftir af leiknum og staðan var 74-76 þeim í vil. Hervelle fyrirliða Belga brást bogalistin í báðum skotunum og íslenska liðið brunaði í sókn. Páll Axel Vilbergsson fyrirliði tók 3ja stiga skot á lokasekúndunni úr þröngri stöðu. Boltinn rataði í körfuna í sömu mund og lokaflautið gall. Íslenskur sigur var staðreynd, 77-76. Þetta var aðeins annar sigurinn á Belgum í 10 landsleikjum og vafalaust sá sætasti. Hlynur Bæringsson fór á kostum á heimavelli, skoraði 23 stig og hirti 14 fráköst. [v+]http://www.kki.is/leikvarp/tolfraedi.asp?Leikur=1500002018_1_3[v-]Tölfræði leiksins[slod-].