30 júl. 2004Það var ekki mikið um ljósa punkta í leik íslensku stelpnanna gegn Azerbaidjan í gær en sá bjartasti var örugglega góð innkoma Sólveigar Gunnlaugsdóttur í öðrum leikhluta. Sólveig kom inn á þegar 5 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik í stöðunni 18-30 fyrir Azerbaidjan. Sólveig spilaði næstu 15 mínútur og 4 sekúndur og skoraði á þeim 6 stig og stal að auki 4 boltum. Sólveig kom ekkert við sögu í fjórða leikhluta en þann tíma sem hún var inná vann íslenska liðið med fjórum stigum. Enginn annar leikmaður íslenska liðsins var í plús þann tíma sem þær voru inná vellinum og munaði 6 stigum á Sólveigu og næsta manni á listanum. Sólveig hitti úr 2 af 4 skotum sínum utan af velli og báðum vítunum auk þess að taka eitt frákast og senda eina stoðsendingu. Plús og mínus hjá íslensku stelpunum gegn Azerbadjan: +4 Sólveig Gunnlaugsdóttir 15 mín:4 sek (26-22) -2 Alda Leif Jónsdóttir 37:32 (61-63) -3 Birna Valgarðsdóttir 36:39 (63-67) -3 Signý Hermannsdóttir 21:04 (31-34) -4 Erla Þorsteinsdóttir 36:39 (63-67) -6 Hildur Sigurðardóttir 17:03 (30-36) -8 Lovísa Guðmundsdóttir 4:56 (4-12) -9 Anna María Sveinsdóttir 22:15 (36-45) -9 Erla Reynisdóttir 9:13 (13-22) Marín Rós Karlsdóttir kom ekkert vid sogu