30 júl. 2004Íslenska liðið var taugatrekkt í fyrri hálfleik enda var hollenska liðið mjög sterkt og skipað háum og sterkum leikmönnum. Holland var einu stigi yfir í hálfleik. Í síðari hálfleik small pressuvörn íslenska liðsins vel saman og með frábærri baráttu tókst stúlkunum að sigra síðari hálfleikinn með 20 stiga mun. Þetta er gott framhald frá því í vor þegar þær unnu Norðurlandameistaratitilinn og gefur þessi sigur liðinu það sjálfstraust sem þarf til að standa sig í jafn sterku móti og Evrópukeppnin er. Næsti leikur er á morgun gegn gestgjöfum Eista, en þeir sigruðu Írland örugglega í dag. Helena Sverrisdóttir 29 stig, 21 fráköst María Ben Erlingsdóttir 27 stig, 7 fráköst Ingibjörg Vilbergsdóttir 6 stig Ragnheiður Theódórsdottir 5 stig Bryndís Guðmundsdóttir 2 stig, 9 fráköst Góðar kveðjur frá stelpunum í Eistlandi.