31 júl. 2004Íslenska kvennalandsliðið tryggði sér sigur á Promotion Cup í Andorra með, [v+]http://www.kki.is/leikvarp/tolfraedi.asp?Leikur=1500002016_1_5[v-]81-66[slod-] sigri á Lúxemburg í úrslitaleik í kvöld. Lúxemborg var taplaust fyrir leikinn og spilaði stífa og harða pressuvörn allan tímann. Íslenska liðið spilaði skynsamlega, Anna María Sveinsdóttir sýndi mikilvægi sitt í stórum leikjum og Erla Reynisdóttir átti frábæra innkomu þegar Alda Leif Jónsdóttir þurfti að yfirgefa völlinn og fór í athugun á sjúkrahús. Signý Hermannsdóttir var stigahæst með 20 stig og 10 fráköst, Anna María skoraði 17, 12 þeirra í seinni hálfleik og Erla Reynisdóttir var með 15 stig og 6 stoðsendingar og 100% vítanýtingu (9 af 9). Íslensku stelpurnar höfðu alltaf frumkvæðið í leiknum, það munaði tveimur stigum eftir fyrsta leikhluta, 20-18, og fjórum stigum í hálfleik, 42-38. Í seinni hálfleik náðu íslensku stelpurnar upp góðu forskoti sem þær héldu út leikinn. Ísland leiddi med 10 stigum eftir þriðja leikhluta, 65-55 og leikinn á endanum med 15 stigum, 81-66. Þetta er í annað skipti sem íslenska kvennalandsliðið vinnur Promotion Cup en síðast gerðist það fyrir átta árum (1996). Fimm leikmenn íslenska liðsins í dag voru einnig med þá. Það eru: Anna María Sveinsdóttir, Erla Reynisdóttir, Alda Leif Jónsdóttir, Birna Valgarðsdóttir og Erla Þhorsteinsdóttir. Guðbjörg Norðfjörð, farastjóri nú í Andorra var leikmaður liðsins fyrir átta árum. Anna María Sveinsdóttir tilkynnti það í leikslok ad þetta væri hennar 60. og síðasti landsleikur og það er óhætt að segja að hún hafi endað með stæl. Anna María skoraði 8 stig í síðasta leikhlutanum sem íslenska liðið vann með fimm stigum, 16-11. Hún tók líka vid bikarnum ásamt Erlu Þorsteinsdóttur fyrirliða, í mótslok. Anna María mun Því ekki spila med liðinu á Norðurlandamótinu í Svíþjóð sem hefst 10. ágúst næstkomandi. Atkvæðamestar hjá íslenska liðinu: Signý Hermannsdóttir 20 (10 fráköst, 3 varin, hitti úr 9 af 14 skotum, 12 stig í 1. leikhluta) Anna María Sveinsdóttir 17 (8 af 9 í 2ja stiga skotum) Erla Reynisdóttir 15 (6 stoðs., 5 fráköst, hitti úr 9 af 9 vítum) Hildur Sigurðardóttir 12 (8 stoðs., 5 fraköst, 3 stolnir) Erla Þorsteinsdóttir 8 (hitti úr 3 af 5 skotum og 2 af 2 vítum) Alda Leif Jónsdóttir 4 (4 fraköst, 2 stoðs., meiddist eftir 13 mín. og 55 sek., var flutt á sjúkrahús en er óbrotinn en mjög aum og sárþjáð.) Sólveig Gunnlaugsdóttir 3 Birna Valgarðsdóttir 2 (6 fráköst, 3 varin, tók ekki 3ja stiga skot, var 12 af 27 (44%) fyrir leikinn.) Hægt er að nálgast [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00002016/ISLAND__.htm[v-]heildartölfræði[slod-] liðsins og [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00002016.htm[v-]staka leiki.[slod-].