31 júl. 2004Signý Hermannsdóttir var valin besti maður íslenska kvennalandsliðsins í 84-58 sigurleik á Möltu í gær og er þetta í annað sinn sem hún er valin besti maðurinn. Signý stóð sig einnig best allra að mati þjálfara og fararstjórn í fyrsta leiknum gegn Skotum. Signý skoraði 10 stig, nýtti öll 3 skotin sín utan af velli og 4 af 5 vítum. Þá var hún með 13 fráköst, 8 stoðsendingar og 8 varin skot. Signý átti þar med 5 fleiri stoðsendingar en skot á körfuna. Signý var einnig efst hjá íslenska liðinu í plús/mínus en íslenska liðið vann tímann sem hún var inn á í leiknum með 29 stigum, 74-45. Plús og mínus hjá íslenska liðinu gegn Möltu: +29 Signý Hermannsdóttir 32:32 (74-45) +21 Birna Valgarðsdóttir 27 mín: 17 sek (57-36) +18 Anna María Sveinsdóttir 20:39 (46-28) +16 Hildur Sigurðarsdóttir 22.15 (44-28) +15 Alda Leif Jónsdóttir 34:19 (71-56) +11 Erla Reynisdóttir 15:16 (30-19) +10 Lovísa Guðmundsdóttir 8:10 (23-13) +5 Sólveig Gunnlaugsdóttir 12:43 (27-22) +3 Erla Þorsteinsdóttir 20:37 (36-33) +2 Marín Rós Karlsdóttir 6:12 (12-10)