31 júl. 2004Stelpurnar í U16 gerðu sér lítið fyrir og sigruðu gestgjafa Eista 76 - 73 á Evrópumóti U16 landsliða í Eistlandi. Íslenska liðið náði fljótt forystu en eistneska liðið náði að vinna sig inni leikinn í lok fyrri hálfleiks með stuðningi um 1000 áhorfenda. Síðari hálfleikur var að mestu í járnum. Undir lokin var jafnt á flestum tölum en stelpurnar stóðust geysilegt álag og náðu að landa stórgóðum sigri með yfirveguðum leik á síðustu sek. Liðið hefur nú unnið 2 fyrstu leiki sína á mótinu. Það má með sanni segja að íslenska liðið er að koma á óvart í þessu móti. Stigahæstu leikmenn: Helena Sverrisdóttir 21 stig, Ingibjörg Vilbergsdóttir 17 stig, María Ben Erlingsdóttir 16 stig og Bryndís Guðmundsdóttir 12. Næsti leikur er á morgun en þá verður leikið á móti enn einni stórþjóðinni í körfubolta en þá mætir íslenska liðið Litháum. Kveðja frá stelpunum í Eistlandi.