1 ágú. 2004Fyrr í vikunni mátti lesa viðtal í Morgunblaðinu við unga stúlku sem er flugmaður á Boeing 747 þotu hjá Air Atlanta. Stúlkan Rúna Birna Finnsdóttir segir frá því að áhugamál hennar snúist meðal annars um körfubolta en hún lék einmitt með Tindastól, ÍR og ÍS í körfuknattleik á sínum yngri árum. Hóf ferilinn í 1. deild kvenna með Tindastól árið 1993 og lék með þeim til 99 þegar hún skipti í ÍR og haustið 2000 lék hún með ÍS. Í fréttinni segir frá því að líklega sé Rúna Birna yngsti flugmaður í heiminum með réttindi til að fljúga svo stórri þotu sem Boeing 747 er en til að fá slík réttindi þarf að safna tímum á minni vélar. Rúna Birna eyddi einu ári í Bandaríkjunum að fljúga um og finna skógarelda og láta vita og nýttist það henni vel í söfnun tíma. Í sumar hefur hún svo verið að fljúga með Ólympíueldinn vítt og breitt um heiminn.