1 ágú. 2004Íslensku stelpurnar töpuðu í dag fyrir Litháen í þriðja leik sínum í Evrópukeppninni í Eistlandi. Þetta var lélegasti leikur íslenska liðsins til þessa og náðu þær sér aldrei almennilega á strik. Leikurinn endaði 94-77 eftir að íslensku stelpunum tókst að minnka muninn niður í 6 stig þegar 4 mín. voru til leiksloka. Stigahæstar í íslenska liðinu voru Helena Sverrisdóttir með 35 stig (16 fraköst og 6 stoðs). María Ben Erlingsdóttir var með 18 stig, 4 fraköst. Ingibjörg Vilbergsdóttir var með 11 stig. Bára Bragadóttir skoraði 7 stig. Bryndis Guðmundsdóttir skoraði 6 stig og tók 6 fraköst. Næsti leikur liðsins er á morgun gegn Finnum.