15 ágú. 2004Þær fréttir voru að berast frá Englandi á strákarnir í U-16 ára liðinu eru búnir að tryggja sér sigur á í B-deild EM þrátt fyrir að þeir eigi eftir að spila lokaleikinn í dag. Finnar unnu Makedóníu áðan með 78 stigum gegn 75 stigum Makedóníu. Þar er með er ljóst ÍSLAND hefur unnið B-deild Evrópukeppninnar þrátt fyrir að eiga eftir að spila við Holland. Strákarnir eiga að spila við Holland núna kl.13:30. Þessi sigur er með þeim stærri við Íslendingar höfum unnið í alþjóðakörfubolta og því stór dagur hjá körfuknattleiksmönnum í dag. Ísland spilar því í A-deildinni á næsta ári. Varla þarf að taka fram að þar á engin smáþjóð sæti í ár. Frakkar urðu Evrópumeistarar eftir sigur á Rússum í úrslitaleik. Önnur ríki sem áttu lið í A-deildinni í ár voru Slóvenía, Pólland, Ísrael, Serbía&Svartfjallaland, Ítalíu, Litháen, Georgía, Tyrkland, Króatíu, Lettland, Spánn, Grikkland, Belgía og Þýskaland. Samkvæmt [v+]http://www.fibaeurope.com/Default.asp?cid=%7BA440F8BD-44CB-4159-9FC6-547E93455FE2%7D&compID=%7B89EB60F8-7F8F-4FFB-9427-6103055F3511%7D[v-]vef FIBA Europe[slod-] lítur út fyrir að Þýskaland og Pólland hafi fallið í B-deildina fyrir næsta ár.