24 ágú. 2004Íslenska karlalandsliðið hélt áleiðis til Austurríkis í morgun, en þar mun liðið mæta heimamönnum í landsleik annað kvöld, miðvikudagskvöld. Leikurinn fer fram í St. Pölten sem er í um 60 km fjarlægð frá Vínarborg. Báðar þjóðirnar eru að undirbúa sig fyrir leiki á B-deild Evrópumótsins í næsta mánuði, en sem kunnugt er mæta Íslendingar Dönum í A-riðli keppninnar í Århus 10. september og Rúmenum í Keflavík þann 19. september. Austurríki er í C-riðli B-deildarinnar ásamt Albaníu, Kýpur og Hvíta Rússlandi. Frá Austurríki heldur liðið til Ungverjalands til þátttöku í fjögurra landa móti. Fyrsti leikurinn í mótinu er á föstudag gegn Póllandi, á laugardag mætum við Austurríki og á sunnudag mætir íslenska liðið heimamönnum, Ungverjum. Pólland og Ungverjaland eru í A-deildinni. Pólverja þekkjum við frá leikjunum hér á landi fyrr í þessum mánuði, en þá sigruðu þeir í tveimur leikjum en Ísland í einum. Eftirtaldir leikmenn eru í landsliðinu sem tekur þátt í leikjunum næstu daga: Páll Axel Vilbergsson UMFG Páll Kristinsson UMFN Friðrik Stefánsson UMFN Hlynur Bæringsson Snæfell Sigurður Þorvaldsson Snæfell Lárus Jónsson KR Eiríkur Önundarson ÍR Magnús Þór Gunnarsson Keflavík Jón N. Hafsteinsson Keflavík Arnar Freyr Jónsson Keflavík Fannar Ólafsson Ase Dukas Jakob Örn Sigurðarson Birmingham Southern College Þjálfari liðsins er Sigurður Ingimundarson og aðstoðarþjálfari er Friðrik Ragnarsson. Sjúkraþjálfari liðsins er Matti Ósvald Stefánsson og fararstjórar í ferðinni eru Hrannar Hólm og Gísli Georgsson. mt: Fannar Ólafsson kemur til móts við landsliðið frá Grikklandi.