25 ágú. 2004Jón Arnór Stefánsson landsliðsmaður í körfuknattleik hefur gert eins árs samning við rússneska félagið Dynamo St. Petersburg. Jón Arnór, sem var á mála hjá Dallas Mavericks í NBA-deildinni, er laus allra mála hjá Dallas og ætlar sér stóra hluti með rússneska félaginu í vetur. Jón Arnór sá ekki fram á að fá mikið að leika með Dallas í vetur og vildi því róa á önnur mið. Hann hefur þó engan veginn gefið NBA-drauminn uppá bátinn og hyggst reyna fyrir sér aftur á þeim vígstöðvum þó síðar verði. Dynamo St. Petersburg er talið eitt sterkasta félagsliðs Rússland, en rússneska deildin er um þessar mundir sú sterkasta í Evrópu ásamt þeirra spænsku. Félagið var stofnað á þessu ári og þykir til alls líklegt í deildinni, enda mun ekki skorta neitt uppá hvað fjárhag félagsins varðar. Félagið ætlar sér einnig stóra hluti í Evrópukeppni undir stjórn nýs þjálfari, Davids Blatt, sem stjórnað hefur Maccabi Tel Aviv í Ísrael undanfarin ár með góðan árangri. Auk Jóns Arnór, hefur félagið fengið til sín nokkra sterka leikmenn til sem styrkja munu liðið enn frekar. Á morgun heldur Jón Arnór áleiðis til Rússlands í læknisskoðun og mun síðan fara með liðinu í æfingaferð til Ítalíu. Í byrjun september mun Jón Arnór síðan koma til liðs við íslenska landsliðið í Danmörku, þar sem fyrsti leikur Íslands í Evrópukeppni landsliða fer fram 10. september. Hann mun síðan koma með liðinu heim og leika gegn Rúmeníu þann 19. september í Keflavík. Eins og að framan greinir gerði Jón Arnór eins árs samning við Dynamo St. Petersburg. Í samtali við kki.is sagist Jón Arnór ætla að taka stöðuna að tímabilinu loknu, hvort hann léki áfram í Evrópu eða hvort hann héldi á ný til Bandaríkjanna. kki.is óskar Jóni Arnóri til hamingju með samninginn og hlakkar til að flytja af honum fréttir af nýjum vígstöðvum í vetur.