27 ágú. 2004Danmörk og Ísland mætast í fyrsta leik A-riðils undankeppni Evrópukeppni landsliða þann 10. september nk. Leikurinn fer fram í Århus. Auk Íslands og Danmerkur, er Rúmenía einni í sama riðli. Danir undirbúa sig nú af keppni fyrtir leikinn gegn Íslendingum og munu þeir leika fimm undirbúningsleiki á næstu dögum. Danir taka þátt í fjögurra landa móti á Írlandi þann 1.-4. september. Þar leika þeir gegn Englendingum og Tyrkjum, auk heimamönnyum. Upphaflega átti Líbanon að vera með í mótinu, en boðaði forföll fyrr í þessum mánuði. Þá var Íslandi boðið að vera með en það var afþakkað og Danir tóku sæti Líbana. Eftir mótið á Írlandi heldur danska liðið til Helsinki og leikur tvo leiki við Finna 5. og 6. september. Allan Foss, landsliðsþjálfari Dana hefur valið eftirtalda leilkmenn í landsliðshóp sinn: Martin Thuesen Chanan Colman Jesper Sørensen Jens Jensen Nicolai Iversen Peter Johansen Mikkel Langager Larsen Ndjadi Kimgombe Jonas Buur Sinding Chris Christoffersen Jens Laulund verður með á Írlandi en ekki í Finnlandi Michael Niebling verður með á Írlandi en ekki i Finnlandi Thomas Soltau verður með í Finnlandi en ekki á Írlandi Allan Madsen verður með í Finnlandi en ekki i Írlandi Þá munu þeir Michael Dahl Andersen og Christian Drejer (sjá mynd) bætast í hópinn hjá Dönum fyrir leikina gegn Íslandi og Rúmeníu.