8 sep. 2004Jón Arnór Stefánsson er að standa sig gríðarlega vel með sínu nýja liði, Dynamo St. Petersburg, en liðið er þessa dagana í æfingbúðum í Bormio á Ítalíu. Í gær skoraði Jón Arnór 22 stig, gaf 8 stoðsendingar og stal 3 boltum í 91-81 sigri liðs síns á BC Kiev frá Úkraínu. Í fyrradag skoraði Jón Arnór 11 stig, gaf 7 stoðsendingar, tók 5 fráköst og stal 3 boltum í 84-76 sigri Dynamo á Montcatini. Í kvöld leikur liðið gegn Fenerbache frá Tyrklandi, en á morgun heldur Jón áleiðis til Danmerkur til móts við íslenska landsliðið. Hann mun hitta félaga sínu úr landsliðinu á Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn, en þaðan heldur liðið í rútu til Árósa. Leikur Dana og Íslendinga hefst kl. 17 á föstudag að íslenskum tíma. Leikurinn verður sýndur beint á risaskjá í Ölveri í Glæsibæ, en leikurinn verður sýndur á nýrri danskri íþróttastöði, 4 sport.