9 sep. 2004Körfuknattleiksdeild Þórs stendur fyrir æfingamóti á Akureyri helgina 10. til 12. september. Verið er að endurvekja Greifamótið sem var árviss viðburður fyrir nokkrum árum. Þá hefur KB-banki jafnframt gengið til liðs við Þórsara og Greifamenn og mun mótið því bera nafnið, Greifa- og KB-bankamótið í körfubolta. Að þessu sinni hefur sjö liðum verið boðið til leiks, auk gestgjafanna í Þór. Liðin sem um ræðir eru ekki af verri endanum en þau eru ÍR, Grindavík, KR, Snæfell, Fjölnir, Tindastóll og KFÍ. Leikið verður í tveimur riðlum sem spilast á föstudegi og laugardegi. Leikið verður í Íþróttahöllinni og í glænýju íþróttahúsi Síðuskóla. Úrslit ráðast svo fyrri part sunnudags þegar leikið verður um sæti. Aðgangur að leikjunum er ókeypis og er fólk eindregið hvatt til þess að mæta á til þess að mæta á völlinn. Riðlaskipting og niðurröðun leikja: A – riðill (Síðuskóli) B – riðill (Höllin) ÍR Snæfell KR Grindavík Tindastóll KFÍ Fjölnir Þór Ak. Föstudagur 10. sept. Síðuskóli kl. 19:00 ÍR-UMFT Síðuskóli kl. 21:00 KR-Fjölnir Höllin kl. 19:00 Þór Ak.-Grindavík Höllin kl. 21:00 Snæfell-KFÍ Laugardagur 11. sept. Síðuskóli kl. 09:00 UMFT-KR Síðuskóli kl. 11:00 Fjölnir-ÍR Síðuskóli kl. 15:00 Fjölnir-UMFT Síðuskóli kl. 17:00 ÍR-KR Höllin kl. 09:00 Þór Ak.-KFÍ Höllin kl. 11:00 Grindavík-Snæfell Höllin kl. 15:00 Þór Ak.-Snæfell Höllin kl. 17:00 KFÍ-Grindavík Sunnudagur 12. sept. Síðuskóli kl. 09:00 A4 – B4 Höllin kl. 09:00 A3 – B3 Höllin kl. 11:00 A2 – B2 Höllin kl. 13:00 A1 – B1 – Úrslit Frekari upplýsingar veitir Hrafn Kristjánsson, þjálfari mfl. Þórs, í síma 891-7710.