14 sep. 2004Íslenska landsliðið mun leika gegn Rúmeníu sunnudaginn 19. september nk. Í Evrópukeppninni B-deild.Leikurinn fer fram í íþróttahúsinu í Keflavík kl. 16:00. Auk þess verður bein útsending frá leiknum í Sjónvarpinu. Sigurður Ingimundarson landsliðsþjálfari hefur verið að vinna með leikmannahóp undanfarna mánuði, en undirbúningur fyrir Evrópukeppnina hefur staðið síðan í vor. Leikmannahópinn skipuðu eftirtaldir leikmenn í upphafi: Arnar Freyr Jónsson – Keflavík Eiríkur Önundarson – ÍR Fannar Ólafsson – Ase Dukas (Gri.) Helgi Magnússon – Catawba Hlynur Bæringsson – Snæfell Jakob Sigurðsson – Birmingham SU Jón N. Hafsteinsson – Keflavík Jón Arnór Stefánsson – Dynamo St. Petersburg Magnús Þór Gunnarsson – Keflavík Páll Kristinsson – Njarðvík Páll Axel Vilbergsson – Grindavík Sigurður Þorvaldsson – Snæfell Lárus Jónsson - KR Friðrik E. Stefánsson – Njarðvík Pavel Ermolinski – Malaga Mirko Virijevic – Haukar Pálmi F. Sigurgeirsson – Snæfell Morten Þór Szmiedowicz - Grindavík Nokkrir leikmenn gáfu ekki kost á sér í landsliðsverkefnin á árinu vegna meiðsla/veikinda: Logi Gunnarsson - Giessen 46ers – meiddur í öxl er rétt nýbyrjaður að æfa að nýju. Brenton Birmingham – Njarðvík - hefur átt við þráláð meiðsli að stríða í baki allt undirbúningstímabilið. Damon Johnson er rétt að stíga upp eftir uppskurð en hefur ekki æft í nokkra mánuði. Sigurður Ingimundarson mun tilkynna lið Íslands í leiknum gegn Rúmeníu á blaðamannafundi fimmtudaginn 16. september nk. mt: Landsliðið sem lék gegn Dönum í Århus á föstudaginn var. Á myndina vantar Fannar Ólafsson og Hlyn Bæringsson.