21 sep. 2004Á sunnudaginn vann karlalandsliðið sætan og mikilvægan sigur á Rúmenum í riðlakeppni B-deildar Evrópumóts landsliða. Barátta liðsins fyrir sæti í A-deildinni heldur því áfram og næsti leikur verður hér heima þann 3. september á næsta. Þar verður væntanlega um úrslitaleik riðilsins að ræða, en leikurinn er gegn Dönum. Með leiknum á sunnudaginn lauk keppnistímabili landsliðanna, keppnistímabili sem ekki á annan sinn líka í sögu körfuboltans. Tímabilið hófst í maí með Norðurlandamóti unglinga í Stokkhólmi þar sem Ísland fór heim með þrjá titla af fjórum sem í boði voru. Áður hafði Ísland aðeins einu sinni unnið slíkan titil í áratuga sögu mótanna. U-16 ára liðin gerðu það ekki endasleppt því árangur þeirra í B-deild Evrópumótsins var einnig gæsilegur. Drengjaliðið vann sinn riðil í B-deildinni og tryggði Íslandi sæti í A-deild á næsta ári. Stúlknaliðið var aðeins hársbreidd frá því að ná sams konar árangri í sínum riðli, en varð í 2. sæti. Kvennalandsliðið vann síðan sigur á Promotion cup FIBA og náði besta árangri íslensks kvennalandsliðs á Norðurlandamóti. Hér er ógetið árangurs karlalandsliðsins sem ma. lagði A-þjóðir Belga og Pólverja í leikjum í sumar, en mikill metnaður einkenndi verkefnaval liðsins, þar sem andstæðingar voru jafnan í sterkari kantinum. Það kemur síðan í ljós á næsta ári hvort karlalandsliðið nær að komast upp í A-deild EM líkt og drengjalandsliðinu tókst. Árangurinn í tölum , sigrar/töp: U-16 ka. 11/3 eða 82% árangur. U-16 kv. 11/2 eða 85% árangur. U-18 ka. 4/1 eða 80 árangur. U-18 kv. 0/4 eða 0% árangur. Samtals árangur hjá yngri liðunum 26/10 eða 72% árangur. A-lið kv. 6/6 eða 50% árangur A-lið karla 4/8 eða 33% árangur Alls eru þetta 60 leikir og árangurinn í heildina er 36/24 eða 60% árangur. U-16 ka. Norðurlandameistarar og sigur í sínum riðli í B-deild EM. U-16 kv. Norðurlandameistarar og silfursæti í sínum riðli í B-deild EM. U-18 ka. Norðurlandameistarar. A-lið kv. Sigur á Promotion cup og besti árangur á NM til þessa. A-lið ka. Sigur á tveimur A-þjóðum og áframhaldandi barátta um sæti í A-deild EM. Fjölmiðlar hafa greint skilmerkilega frá árangri liðanna í sumar og komið honum á framfæri við almenning. Í íþróttaopnu DV í síðustu viku var umfjöllun um U-16 ára liðið og leiki þess á EM í Brighton í sumar. Fyrirsögn þeirrar umfjöllunar segir í raun allt sem segja þarf um árangur landsliðanna í sumar: "Sumarið sem önnur verða miðuð við"