26 sep. 2004Stúdínur unnu Hauka, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2005/00002050/20500101.htm [v-]70-56[slod-] í úrslitaleik [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2005/00002049.htm [v-]Hraðmóts Sparisjóðsins[slod-] í Keflavík sem lauk í Íþróttahúsinu í Njarðvík í gær. ÍS vann alla fimm leiki sína í mótinu en hið unga lið Hauka tapaði tvisvar fyrir ÍS seinni daginn en vann alla hina leiki sína. Lið Grindavíkur varð í þriðja sæti, Njarðvík endaði í fjórða sætinu en KR rak lestina. Hraðmótið fór fram á föstudaginn í Strandgötu og í Njarðvík á laugardaginn. Fyrst fór fram riðlakeppni þar sem öll liðin fimm spiluðu innbyrðisleiki sem voru 2 x 12 mínútur. Efstu tvö liðin mættust síðan í úrslitaleik í lokin en þar var leikið í 4 x 9 mínútur. Það var mikil keyrsla á liðinum enda fór mótið fram á einum sólarhring, hófst klukkan 17.30 á föstudag og endaði áður en klukkan sló 17. 30 á laugardag. Stigaskor ÍS dreifðist vel í úrslitaleiknum. Signý Hermannsdóttir var með 17 stig, 10 stoðsendingar og 9 fráköst, Lovísa Guðmundsdóttir skoraði 15 stig, tók 13 fráköst, gaf 4 stoðsendingar og varði 3 skot, Alda Leif Jónsdóttir skoraði 15 stig, gaf 6 stoðsendingar, stal 4 boltum og varði 4 skot og hin síunga Hafdís Helgadóttir bætti síðan við 12 stigum og 5 fráköstum. Helena Sverrisdóttir var allt í öllu í liði Hauka með 30 stig, 11 fráköst og 6 stoðsendingar en hún fiskaði 14 villur og fékk 23 víti í leiknum. 18 stiga hennar komu í framhaldinu af vítalínunni. Ösp Jóhannsdóttir kom henni næst með 15 stig, öll úr þriggja stiga skotum. Stúdínur byrja veturinn vel en þær unnu alla fimm leiki sína í mótinu sem fram fór á föstudag og laugardag auk þess sem á fimmtudagskvöldið unnu þær sigur á KR, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2005/00002011/20110302.htm [v-]68-34[slod-], í fyrri úrslitaleik liðanna í Reykjavíkurmótinu og hafa 34 stiga forskot í seinni leikinn sem fram fer á miðvikudaginn. Unndór Sigurðsson er greinilega að gera góða hluti á sínu fyrstu vikum sem þjálfari ÍS, sex sigrar á innan við tveimur sólarhringum eru ekki slæmur meðbyr inn í Íslandsmótið.