7 okt. 2004Keppni í Intersport-deildinni hefst í kvöld með fimm leikjum. Á Selfossi verður í fyrsta sinn leikið í efstu deild karla í körfubolta þegar Hamar/Selfoss tekur á móti KR. Leikurinn er jafnframt fyrsti körfuboltaleikurinn í nýju og glæsilegu íþróttahúsi, Iðu, sem er íþróttahús Fjölbrautarskóla Suðurlands. Í íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi verður einnig tímamótaleikur þegar Fjölnir leikur sinn fyrsta leik í efstu deild, en mótherjar þeirra verða Haukar. Þetta verður þó ekki fyrsti Intersport-deildar leikurinn í Grafarvogi, því sameiginlegt lið Vals og Fjölnis lék heimaleiki þar keppnistímabilið 2001-2002. Aðrir leikir kvöldsins verða viðureignir nýliða Skallagríms og ÍR. UMFN tekur á móti KFÍ í Njarðvík og Tindastóll fær Íslandsmeistara Keflavíkur í heimsókn. Í 1. deild kvenna taka nýliðar Hauka á móti ÍS. Leikir kvöldsins hefjast kl. 19:15. Fyrstu umferð Intersport-deildarinnar lýkur með leik UMFG og deildarmeistara Snæfells annað kvöld.