12 nóv. 2004Um helgina fara fram lokaleikirnir í 2. umferð fjölliðamóta yngri flokkanna. Leikið verður í 11. flokki karla, 8. flokki karla, 9. flokki kvenna og minnibolta kvenna. Auk þess verða leikir í meistaraflokki karla og kvenna á dagskrá KKÍ um helgina. Mótin um helgina verða víðs vegar um landið eins og venja er. Leikið verður Í Hafnarfirði, Reykjavík, Hveragerði, Flúðum, Sauðárkróki, Akranesi, Grindavík og Keflavík. Auk þess verður í Vestmannaeyjum fjölliðamót í 7. flokki karla sem frestað var vegna veðurs um síðustu helgi. Tveir leikir er á dagskrá Intersport-deildarinnar í kvöld og með þeim lýkur sjöttu umferð. Í Grindavík taka heimamenn á móti Tindastól og í DHL-höllinni mætast KR og Keflavík. Sjöunda umferð deildarinnar hefst síðan á sunnudag og verður framhaldið á mánudag og þriðjudag. Einnig verður leikið í 1. deild karla, sem og í 2. deild karla og kvenna um helgina. Um síðustu helgi fór fram fjölliðamót í 10. flokki kvenna í Vík í Mýrdal. Var það fyrsta fjölliðamót yngri flokka sem þar fer fram. Meðfylgjandi mynd var tekin í mótinu. Það var Jónas Erlendsson í Vík sem sendi kki.is myndina og kunnum við honum þakkir fyrir.