17 nóv. 2004Undanúrslit og úrslit í Hópbílabikar karla og undanúrslit í Hópbílabikar kvenna fara fram í Laugardalshöll um næstu helgi. Á föstudagskvöld mætast Snæfell og Grindavík kl. 18:30 og Keflavík og Njarðvík kl. 20:30 í undanúrslitum karla. Undanúrslitaleikir kvenna fara fram á laugardag þegar ÍS og Haukar mætast kl. 12:00 og Keflavík og Grindavík kl. 14:00. Úrslitaleikurinn fer síðan fram 27. nóvember. Úrslitaleikur karla er á dagskrá á laugardaginn kl. 16:00. Leikurinn verður sýndur beint í Sjónvarpinu, sem og leikur Keflavíkur og Grindavíkur í kvennaflokki kl. 14:00. mt: Það eru Hópbílar sem eru stuðningsaðili keppninnar í ár eins og í fyrra. Gísli Friðjónsson forstjóri Hópbíla með eignarbikarana í baksýn. [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2005/00002023.htm[v-]Hópbílabikar karla[slod-] [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2005/00002024.htm[v-]Hópbílabikar kvenna[slod-]