19 nóv. 2004Það er komin að Hópbílabikarhelginni. Leikjum sem oft hafa verið skemmtilegustu leikir vetrarins. Það hefur aldrei brugðist að mæta til að sjá bestu lið landsins mætast í þessari keppni og "tvíhöfða" fyrirkomulagið (tveir leikir á kvöldi) er bara til að auka á stemmninguna og hvetja fleiri til að mæta í Höllina. Ekki verður síður fjör í Höllinni á morgun þegar boðið verður uppá þrjá leiki í röð. Í kvöld mætast Snæfell og Grindavík kl. 18:30 og Keflavík og Njarðvík kl. 20:30. Úrslitaleikur karla verður kl. 16:00 á morgun. Fyrri kvennaleikurinn á morgun, laugardag, er viðureign ÍS og Hauka kl. 12:00. Suðurnesjaliðin Keflavík og Grtindavík mætast síðan kl. 14:00. Sá leikur, ásamt úrslitaleik karla, verður sýndur beint í Sjónvarpinu.