8 feb. 2005Sjónvarpsstöðin Sýn hefur í kvöld útsendingar á bestu leikjunum í sögu NBA-deildarinnar. Í kvöld er það leikur Los Angeles Lakers - Philadelphia 76ers í Philadelphia frá árinu 1980 sem er á dagskrá. Þessi leikur var sá sjötti í röð úrslitaleikja liðanna þetta árið. Kareem Abdul Jabbar miðherji Lakers var meiddur og gat ekki leikið þennan leik. Stöðu hans í leiknum tók nýliðinn Earvin "Magic" Johnson, sem að öllu jöfnu lék sem leikstjórnandi. Skemmst er frá því að segja að Magic fór á kostum í leiknum, skoraði 42 stig, hirti 15 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Lakers vann leikinn 123-107 og þar með meistaratitilinn. Í kjörfarið var Magic valinn besti leikmaður (MVP) úrslitakeppninnar. Á næstunni mun Sýn sýna fleiri áhugaverða leiki úr sögu NBA-deildarinnar. Leikurinn í kvöld hefst kl. 20:20.