25 feb. 2005KKÍ heldur á morgun, laugardag, fund með foreldrum þeirra unglinga sem æfa nú fyrir Norðurlandamótið sem fram í Svíþjóð í maí nk. Fundurinn fer fram í íþróttamiðstöðinni í Laugardal kl. 11:00. Tilgangur fundarins er að kynna verkefni sumarsins fyrir foreldrum og forráðamönnum leikmanna. Norðurlandamótið, sem fram fer í Svíþjóð í byrjun maí verður sérstakegla kynnt, en stór hópur íslenskra keppenda fer á mótið eins og endranær eða rúmlega 60 manna hópur þegar allir eru taldir með. Tímasetning mótsins í ár er afar slæm fyrir íslensku krakkana, en mótið hittir að þessu sinni á próftíma grunn- og framhaldsskólanna. KKÍ mun gera sitt besta til að ferðin nýtist einnig fyrir prófundirbúing, en sérstök aðstaða verður á keppnisstað fyrir krakkana til að læra í. Einnig mun hluti af fararstjórum Íslands í ferðinni verða kennarar.