19 mar. 2005Riðlakeppni úrslitakeppni 2. deildar karla er lokið en úrslitakeppnin fer fram í Vestmannaeyjum um helgina. Undanúrslit og leikir um sæti fara fram á morgun en í undanúrslitin komust ÍV, HHF, HK og Reynis S. Tvö efstu liðin komast upp í 1. deild og því ræðst það strax í fyrramálið hvaða lið vinna sér inn þessi sæti en Ármann/Þróttur og ÍA féllu úr 1. deildinni í vetur. Keppnin hefur verið mjög jöfn og spennandi í Eyjum og til dæmis þurfti að framlengja leik Reynis Sandgerði og HHF en HHF vann 109-102 og tryggði sér þar með efsta sætið í sínum riðli. Heimamenn í ÍV unnu hinn riðilinn þar sem þrjú lið urðu efst og jöfn og þar sitja ÍG-menn eftir þrátt fyrir að hafa fengið jafnmörg stig og lið ÍV og HK sem komust í undanúrslitin. Gangur mála í Vestmannaeyjum til þessa: Úrslitin í A-riðli: ÍV 98-92 HK ÍG 89-54 Hörður ÍV 78-53 Hörður ÍG 78-86 HK ÍV 77-80 ÍG HK 90-70 Hörður Lokastaðan: 1. ÍV, 4 stig 2. HK, 4 stig 3. ÍG, 4 stig 4. Hörður 0 stig. Úrslitin í B-riðli: Laugdælir 61-81 HHF Reynir S. 77-74 Dalvík Reynir S. 102-109 HHF (framlengdur leikur) Laugdælir 81-76 Dalvík Reynir S. 101-63 Laugdælir Dalvík 79-73 HHF Lokastaðan: 1. HHF, 4 stig 2. Reynir S. 4 stig 3. Laugdælir, 2 stig 4. Dalvík, 2 stig Úrslitaleikir sunnudagsins: Undanúrslit: HHF-HK ÍV-Reynir S. Leikur um 7. sætið: Hörður-Dalvík Leikur um 5. sætið: ÍG-Laugdælir