21 mar. 2005Haukar og Fjölnir urðu um helgina Íslandsmeistarar í 7. flokki. Haukar unnu 7. flokki kvenna og Fjölnir 7. flokk karla. Bæði félögin unnu titlana á heimavelli sínum. Haukastúlkurnar í 7. flokki kvenna tileinkuðu þjálfara sínum, Yngva Gunnlaugssyni, sigurinn. Hann gat ekki verið með þeim í úrslitamótinu, þar sem hann liggur á sjúkrahúsi eftir augnaðgerð. Eftir mótið héldu stúlkurnar á sjúkrabeð þjálfara síns með bikarinn í farsteskinu og verðlaunapening til þjálfarans. Haukar lentu í kröppum dans í [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2005/00002191.htm[v-]úrslitamótinu[slod-], þurftu ma. að leika tvíframlengdan leik gegn UMFH. Fjölnisstrákar í 7. flokki [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2005/00002189.htm[v-]unnu alla sína leiki[slod-] nokkuð létt og voru vel að sigrinum komnir. Þetta lið varð í örðu sæti í MB í fyrra, en þá varð UMFN Íslandsmeistari. Helgina 12.-13. mars varð UMFN Íslandsmeistari í 8. flokki kvenna, en mótið fór fram á Flúðum. Þá varð Breiðablik Íslandsmeistari í minnibolta karla í móti sem fram fór í Smáranum. kki.is stefnir að því að birta myndir af öllum Íslandsmeistaraliðum í ár og biður þau félög sem í hlut eiga að [p+]bjorn@kki.is[p-]senda myndirnar[slod-] hið fyrsta. mt: Íslandsmeistarar Hauka í 7. flokki kvenna fengu sér langa og góða sturtu eftir sigurinn á Íslandsmótinu um helgina enda ekki vanþörf á. (mynd - haukar.is)