6 apr. 2005Keflavík varð í kvöld Íslandsmeistari kvenna þriðja árið í röð og í tólfta skipti frá upphafi. Keflavík vinn þriðja leikinn í úrslitaeinvíginu gegn Grindavík, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2005/00002176/21760601.htm[v-]70-57[slod-], og einvígið þar með 3-0. Keflavíkurkonur urðu fyrst Íslandsmeistarar árið 1988 en hafa unnið 12 sinnum síðan á aðeins 17 árum. Alex Stewart var stigahæst í liði Keflavíkur með 24 stig en hún var eftir leikinn valin besti leikmaður úrslitaeinvígisins. Stewart var með 22,3 stig, 9,3 fráköst og 7,7 stoðsendingar að meðaltali í lokaúrslitunum. Keflavíkurliðið vann þar með fjóra titla í vetur, varð Íslandsmeistari í kvöld, deildarmeistari í mars, fyrirtækjabikarmeistari í nóvember og vann meistarakeppni KKÍ í október. Keflavíkurkonur hafa þar með unnið tólf bikara á síðustu þremur tímabilum. Alex Stewart var stigahæst í liði Keflavíkur með 24 stig en næstar henni komu síðan sex leikmenn með 6 til 9 stig en einn mesti styrkur liðsins er breiddin og liðsheildin. Svava Ósk Stefánsdóttir var næststigahæst með 9 stig á 18 mínútum og hin unga Bryndís Guðmundsdóttir var með 8 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar í leiknum en meðaltöl hennar í úrslitaeinvíginu voru 12 stig og 8 fráköst í leik. Birna Valgarðsdóttir var einnig með 8 stig og tók síðan við Íslandsbikarnum í fyrsta sinn og varð sjötta konan sem lyftir honum fyrir hönd Keflavíkur. Anna María Sveinsdóttir, sem varð Íslandsmeistari í 12. sinn í kvöld, var með 8 stig, 14 fráköst og 5 stolna bolta en eftir leikinn fékk hún einnig viðurkenningu fyrir 500. leik sinn fyrir meistaraflokk Keflavíkur. Anna María átti mjög gott úrslitaeinvígi, skoraði 13,3 stig, tók 12,7 fráköst, stal 5 boltum og gaf 4,7 stoðsendingar að meðaltali í leik. Rita Williams var stigahæst hjá Grindavík með 22 stig og Sólveig Gunnlaugsdóttir bætti við 16 stigum en Erlurnar (Reynisdóttir og Þorsteinsdóttir) sem urðu meistarar með Keflavík í fyrra náðu aðeins að skora þrjú stig saman. Rita skoraði samtals 83 stig í leikjunum þremur eða 27,7 stig að meðaltali í leik en hún tók alls 77 skot í einvíginu. Eins og sjá má hér fyrir neðan hefur Keflavík unnið 88 af 100 leikjum sínum í mótum á vegum KKÍ undanfarin þrjú ár en þetta er í þriðja sinn í sögu félagsins sem kvennalið Keflavíkur vinnur titilinn þrjú ár í röð, hin eru 1988-1990 og 1992-1994. Hér á eftir má finna upplýsingar um meistaratitla Keflavíkurkvenna til þessa en þeir eru nú orðnir tólf á aðeins 17 árum. Íslandsmeistarartitlar Keflavíkur eftir úrslitakeppni: 1993 Keflavík (Deildarmeistari) 1994 Keflavík (Deildarmeistari) 1996 Keflavík (Deildarmeistari) 1998 Keflavík (Deildarmeistari) 2000 Keflavík (2. sæti í deildinni) 2003 Keflavík (Deildarmeistari) 2004 Keflavík (Deildarmeistari) 2005 Keflavík (Deildarmeistari) Keflavík vann Íslandsmeistaratitilinn 1988, 1989, 1990 og 1992 í deildarkeppni. Flestir Íslandsmeistarartitlar eftir úrslitakeppni: 8 Keflavík (1993, 1994, 1996, 1998, 2000, 2003, 2004, 2005) 3 KR (1999, 2001, 2002) 1 Breiðablik (1995) 1 Grindavík (1997) Árangur kvennaliðs Keflavíkur í vetur: Deildarkeppni: 17 sigrar, 3 töp Úrslitakeppni: 5 sigrar, 1 tap Bikarkeppni: 2 sigrar, 1 tap Fyrirtækjabikarkeppni: 4 sigrar, 0 töp Meistarakeppni: 1 sigur, 0 töp Samtals: 29 sigrar, 5 töp Árangur kvennaliðs Keflavíkur síðustu þrjú tímabil: Deildarkeppni: 52 sigrar, 8 töp Úrslitakeppni: 15 sigrar, 2 töp Bikarkeppni: 9 sigrar, 2 töp Fyrirtækjabikarkeppni: 10 sigrar, 0 töp Meistarakeppni: 2 sigrar, 0 töp Samtals: 88 sigrar, 12 töp