24 apr. 2007Tamara Bowie, leikmaður UMFG, var frákastahæst í Iceland Express deild kvenna í vetur. Bowie tók alls 295 fráköst í vetur eða 14,8 að meðaltali í leik. Mest tók hún 27 fráköst í einum leik í vetur. Það var gegn Keflavík, 17. janúar síðastliðinn. Telma Björk Fjalarsdóttir, leikmaður Breiðabliks, var frákastahæst íslenskra leikmanna með 10,9 að meðaltali í leik. Hún tók mest 20 fráköst í einum leik, gegn Hamri 14. mars síðastliðinn. Hér fyrir neðan eru 10 frákastahæstu konurnar: Stig Lið Meðaltal (Leikir, Fráköst) 1 Tamara Bowie UMFG 14,8 (20, 295) 2 Latreece Bagley Hamar 13,4 (12, 161) 3 Telma B Fjalarsdóttir Breiðablik 10,9 (19, 207) 4 Hildur Sigurðardóttir UMFG 10,1 (20, 202) 5 Helga Jónasdóttir ÍS 9,8 (20, 195) 6-7 Margrét K Sturludóttir Keflavík 9,7 (20, 193) 6-7 Ifeoma Okonkwo Haukar 9,7 (20, 193) 8 Helena Sverrisdóttir Haukar 7,3 (20, 145) 9 Þórunn Bjarnadóttir. ÍS 7,1 (20, 141) 10Sigrún S. Ámundad. Haukar 7,0 (20, 139)