10 okt. 2016

Í dag er einn (1) dagur þar til forsala miða hefst á www.tix.is á leiki Íslands á EuroBasket 2017 í Finnlandi en miðasaln hefst kl. 10:00 í fyrramálið. KKÍ hvetur alla þá sem ákveðnir eru í að fara til Finnlands og upplifa EM í Helsinki að tryggja sér miða á morgun í forsölunni á netinu og eru helstu ástæður þess eftirfarandi:

· Besta verðið!
Besta miðaverðið er í forsölu og allir eru öruggir með miða á leiki Íslands. Miðaúrvalið er þannig að einungis eru tvær (2) miða“tegundir“ í boði á dag, annars vegar leikur Finnlands og hins vegar hinir tveir leikirnir. Það er því ekki hægt að kaupa miða einungis á leiki Íslands, það fylgja aðrir leikir með, sama hvenær miðarnir eru keyptir. 

· Bestu sætin og tryggir miðar!
Í almennri sölu verður ekki hægt að kaupa miða á besta svæðið (CAT1) þar sem Íslendingarnir sem kaupa miða núna sitja saman á. Mjög líklega verða bara svæði 3-4 í boði, sem verða þá annarstaðar í keppnishöllinni. Ekki er öruggt að hægt verði að fá miða yfir höfuð á FIN-ISL í almennri sölu þar sem þeir seljast líklega upp. Allir Íslendingar sitja saman sem kaupa miða núna í forsölunni sem þýðir frábæra stemningu og gleði.

· Ágóði til KKÍ!
KKÍ fær hluta af miðasölu seldra miða í gegnum tix.is í þessari forsölu frá Finnum og því styrkja áhorfendur landsliðið með miðakaupum.

Vert er að taka fram að líkt og fyrir EuroBasket 2015 í Berlín er takmarkað miðamagn og seldust um 1000 miðar þá upp á 8 klst á fyrsta söludegi. 

Þetta eru einu miðapakkarnir sem í boði eru og það þarf að fara inná tix.is , skrifstofa KKÍ getur ekki tekið frá miða.  

Ekki er hægt að kaupa eingöngu miða á fimm (5) landsleiki Íslands en miðað við þær upplýsingar sem KKÍ hefur varðandi almenna miðasölu í desember má áætla að miðaverð verði ekki lægra fyrir fimm staka Íslandsleiki þá + þeir yrðu í slakari sætum og ekki hjá öðrum Íslendingum. Því má segja að aukaleikir í þessum pakka í forsölu fylgi með og mun koma í ljós hvaða lið það verða þegar dregið verður í riðla 22. nóvember.

Á næstu vikum verður hægt að kaupa pakkaverð flug + hótel fyrir þá sem það vilja og koma þær upplýsingar hér á kki.is en samstarfsaðilar KKÍ hafa tryggt góð verð í bæði gistingu og flug.