21 mar. 2017Í kvöld er einn leikur á dagskránni í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla. Í DHL-höllinni í Vesturbænum mætast í þriðja sinn KR og Þór Akureyri. Staðan í einvíginu er 2-0 fyrir KR en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer áfram í undanúrslitin. 

Stöð 2 Sport verður í DHL-höllinni og sendir leikinn út í beinni.

🏀 KR-Þór Akureyri
➡️ DHL-höllin
⏰ 19:15 · Leikur 3
📺 Sýndur beint á Stöð 2 Sport

Yfirlitssíða úrslitakeppninnar er á forsíðu KKÍ og einnig hérna en þar eru upplýsingar um næstu leiki og tímasetningar, sjónvarpsútsendingar og úrslit leikja.

#korfubolti