4 júl. 2017Í morgun var dregið í riðla hjá FIBA í undankeppni EuroBasket kvenna 2019 en lokakeppnin mun fara fram í Serbíu og Lettlandi. Undankeppnin fer fram þangað til og hefst í nóvember, með leikgluggum 6.-16. nóvember og svo í 5.-15. febrúar 2018 og 12.-22. nóvember 2018 þar sem leiknir eru tveir leikir í hverjum glugga.

Liðin sem Ísland leikur með eru í styrkleikaröð í A-riðli eru: Slóvakía, Svartfjallaland, ÍSLAND og Bosnía. 

Alls taka 16 þjóðir þátt í lokakeppninni og þar sem tvö sæti eru þegar bókuð fyrir gestgjafana (Lettland og Serbíu) eru 14 sæti laus eftir undankeppnina. Sigurvegari hvers riðils fer áfram ásamt sex bestu sætunum í öðru sæti.

Nánar má lesa um dráttinn hérna: www.fiba.com/womenseurobasket/qualifiers/2019

#korfubolti