19 ágú. 2017

KKÍ mun standa fyrir Afreksbúðum í ár líkt og síðastliðin sumur og um helgina 19.-20. ágúst er komið að seinni helgi sumarsins en í ár eru þær fyrir ungmenni fædd 2003. Afreksbúðirnar eru undanfari að U15 ára landsliði Íslands. Yfirþjálfari ásamt vel völdum gestaþjálfurum stjórna ýmsum tækniæfingum. Yfirþjálfarar Afreksbúða 2017 eru þeir Hjalti Vilhjálmsson hjá drengjum og Ingvar Þór Guðjónsson hjá stúlkum.

Dagskráinum helgina er eftirfarandi en æft verður í íþróttahúsinu á Álftanesi á eftirfarandi tímum:

Stúlkur - æfingahelgi 2 · 19.-20. ágúst
Laugardagur 19. ágúst     kl. 11:00 - 13:00 og 15:00 - 17:00               
Sunnudagur 20. ágúst      kl. 09:00 - 11:00 og 13:00 - 15:00   

Drengir - æfingahelgi 2 · 19.-20. ágúst
Laugardagur 19. ágúst     kl. 09:00 - 11:00 og 13:00 - 15:00              
Sunnudagur 20. ágúst      kl. 11:00 - 13:00 og 15:00 - 17:00