19 ágú. 2017

Karlalandslið Íslands mætir Ungverjalandi í æfingaleik í dag í Székesfehérvár í Ungverjalandi. Leikurinn hefst klukkan 15:15 að staðartíma sem er 13:15 að íslenskum.

Íslenska liðið mætti til Ungverjalands í gærkvöldi og tók létta æfingu, í morgun var svo æft aftur og eru menn á fullu að fínstilla hluti fyrir stóra sviðið í Helsinki. Jón Arnór Stefánsson mun þó ekki leika með í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá Ungverjunum á að vera hægt að horfa á leikinn hér og lifandi tölfræði er einnig í boði.