9 feb. 2018

Mótanefnd KKÍ hefur tekið þá ákvörðun eftir að hafa ráðfært sig við Veðurstofuna að fresta öllum fjölliðamótum sem eiga að vera helgina 10.-11. febrúar. Veðurspáin er þannig að ekkert ferðaveður verður laugardaginn 10. febrúar og fyrri parts sunnudagsins 11. febrúar. Einnig er búið að fresta öllum deildarleikjum laugardagsins vegna sömu ástæðna.

Starfsmenn mótanefndar setja sig núna í samband við fulltrúa liðanna við að finna nýjar dagsetningar fyrir öll mót og leiki sem var frestað.