20 feb. 2018Á blaðamannafundi í hádeginu í dag var kynnt hvaða 17 leikmenn Craig Pedersen þjálfari og aðstoðarþjálfarar hans hafa valið til æfinga næstu daga. Liðið undirbýr sig nú að kappi fyrir landsleikina tvo gegn Finnum og svo Tékkum föstudag og sunnudag 23. og 25. febrúar í Laugardalshöllinni.

Eftirtaldir leikmenn skipa hópinn:

Leikmennirnir, félagslið og landsleikir

Breki Gylfason Haukar Nýliði
Emil Barja Haukar Nýliði
Haukur Helgi Pálsson Briem Cholet Basket, Frakkaland 63
Hjálmar Stefánsson Haukar Nýliði
Hlynur Bæringsson Stjarnan 118
Hörður Axel Vilhjálmsson Keflavík 70
Jakob Örn Sigurðarsson Borås Basket, Svíþjóð 90
Jón Arnór Stefánsson KR 96
Kári Jónsson Haukar 7
Kristófer Acox KR 32
Logi Gunnarsson Njarðvík 145
Martin Hermannsson Châlons-Reims, Frakkland 58
Ólafur Ólafsson Grindavík 22
Pavel Ermolinskij KR 67
Pétur Rúnar Birgisson Tindastóll 5
Ragnar Ágúst Nathanaelsson Njarðvík 38
Tryggvi Snær Hlinason Valencia, Spánn 25

#korfubolti