22 feb. 2018Craig Pedersen og aðstoðarþjálfarar hans, Arnar Guðjónsson og Finnur Freyr Stefánsson, hafa valið þá 12 leikmenn sem leika gegn Finnlandi í undankeppni HM 2019. 

Leikurinn fer fram á morgun, föstudaginn 23. febrúar, og hefst hann kl. 19:45 í Laugardalshöllinni. 
Miðasala er í fullum gangi á Tix.is og er von á virkilega góðri stemmningu í Höllinni.

KKÍ hvetur íslenska körfuknattleiksaðdáendur til að fjölmenna á leikinn!

Þeir tólf leikmenn sem valdir eru núna leika sem áður segir gegn Finnlandi á morgun, en síðan verður mögulega, liðinu breytt eitthvað fyrir seinni leikinn gegn Tékklandi á sunnudaginn kl. 16:00.

Leikmennirnir 12 gegn Finnlandi eru:

# Nafn Lið F. ár Staða Hæð Landsleikir
1 Martin Hermannsson Chalon Reims, Frakkland 1994 PG 194 58
6 Jakob Örn Sigurðarson Boras Basket, Svíþjóð 1982 PG 190 90
7 Pétur Rúnar Birgisson Tindastóll 1996 PG 186 5
8 Hlynur Bæringsson Stjarnan 1982 C 200 118
9 Jón Arnór Stefánsson KR 1982 SG 196 96
13 Hörður Axel Vilhjálmsson Keflavík 1988 PG 194 70
14 Logi Gunnarsson Njarðvík 1981 SG 192 145
15 Pavel Ermolinskij KR 987 F 202 67
19 Kristófer Acox KR 1993 PF 198 32
21 Ólafur Ólafsson Grindavík 1990 F 194 22
24 Haukur Helgi Pálsson Briem Cholet Basket, Frakkland 1992 F 198 63
34 Tryggvi Snær Hlinason Valencia, Spánn 1997 C 216 25