16 feb. 2019

Stjarnan og Valur áttust við í frábærum bikarúrslitaleik fyrir framan fjölmenna Laugardalshöll fyrr í dag. Það var  frábær stemning í húsinu allan leikinn og fjölmenntu stuðningsmenn beggja félaga.

Eftir jafnan fyrri hálfleik reyndust Valsstúlkur sterkari í seinni hálfleik og unnu leikinn 74–90. Var þetta fyrsti bikarmeistaratitill Vals í mfl. kvenna.

Helena Sverrisdóttir átti magnaðan leik og endaði hún með 31 stig, 13 fráköst og sex stoðsendingar og var valinn mikilvægasti leikmaður leiksins fyrir þá frammistöðu.

Sigurvegarar Vals fengu að verðlaunum frá Geysir Bílaleigu afnot af bíl í heilt ár.

Til hamingju Valur.