18 feb. 2019

KKÍ auglýsir miðaafhendingu til korthafa fyrir landsleik karlaliðsins gegn Portúgal í forkeppni EuroBasket 2021.
Leikurinn fer fram fimmtudaginn 21. febrúar kl. 19:45 í Laugardalshöllinni.

Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína fyrirfram eða til hádegis á leikdegi.
Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta við hurð, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram útgefnum miðum á viðburðinn.

Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miðana sína rafrænt á netinu fram að leik með því að slá
inn kennitölu sína (án bandstriks)

EINNIG ER SKÝRT TEKIÐ FRAM AÐ ENGA MIÐA VERÐUR HÆGT AÐ NÁLGAST EFTIR AFHENDINGARDAGINN SÍMLEIÐIS, MEÐ TÖLVUPÓSTI EÐA ÖÐRUM SKILABOÐUM TIL STARFSMANNA SAMBANDSINS.

Handhafar appelsínugulra aðgöngukorta fyrir 1 nálgast miða hér (appelsínugul kort): https://tix.is/is/specialoffer/rthixibw43afe
Handhafar blárra aðgöngukorta fyrir 2 nálgast miða hér (blá kort):


Almenn miðasala fer fram á TIX:is á ÍSLAND-PORTÚGAL:
https://tix.is/is/event/7576/

Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars:
„Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“

#korfubolti