21 feb. 2019

Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir kæru sem ÍR sendi inn vegna framkvæmdar á leiks ÍR og Vals á Íslandsmótinu í drengjaflokki 5. febrúar s.l. ÍR krefst þess að leikurinn verði úrskurðaður ógildur og endurtekinn. Valur bar við aðildarskorti að málinu.

Aga- og úrskurðarnefnd komst að þeirri niðurstöðu að úrslit leiksins skyldu standa og hafnaði því öllum kröfum ÍR. Nánar má lesa um niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndar hér.