29 okt. 2019FIBA dró rétt í þessu í tvo riðla í forkeppni HM 2023 en þar leika átta lið í tveimur riðlum. Þar þurfa liðin að hafna í efstu tveim sætum hvors riðils til að fara áfram í aðra umferð forkeppninnar. 

Ísland var dregið í riðil með Slóvakíu, Kosovó og Lúxemborg (í réttri styrkleikaröð).
Hinn riðillinn er því skipaður Hvíta-Rússlandi, Portúgal, Kýpur og Albaníu (í réttri styrkleikaröð).

Leikið verður heima og að heiman, tveir leikir í hverjum landsliðsglugga, sem fram fara í 17.-25. febrúar 2020, nóvember 2020 og svo febrúar 2021.

#korfubolti